Gangmyllan
  • Fréttir
  • Gangmyllan - ræktun
  • Söluhross
  • Reiðkennsla
  • Bergur og Olil
  • Gangmyllan
  • Hafa samband
  • Syðri-Gegnishólar
  • Gamlar myndir
  • Greinar
  • Panta undir stóðhest

Álfaklettur frá Syðri Gegnishólum

Details
Created: 11 June 2017

Í kvöld fórum víð með þennan fola af bæ, og tókum af honum fyrstu myndirnar í reið. Honum fannst það ákaflega spennandi enda í fyrsta sinn sem honum er riðið annarstaðar en heima hjá sér. Reiðtúrinn endaði með nokkrar bunur á vellinum á Selfossi, það er við hæfi þar sem stefnt er með hann í dóm. Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum er fjögurra vera gamall, móðir hanns er Álfadís frá Selfossi og faðir er Stali frá Kjarri.

{gallery}Alfaklettur2017{/gallery}

Keppnis hryssur úr okkar ræktun

Details
Created: 09 June 2017

Þessar tvær hryssur úr okkar ræktun hafa verið að standa sig vel í keppni í Sviss og Þýskalandi. Báðar eru í efstu sætum í T1 og V2 en þær hlutu báðar fyrstu verðlaun í kynbótadómi en eru  núna keppnishross nýrra eigenda. Við óskum þessum tveimur stúlkum, Alina Bleichenbacher eiganda Júlíönu frá Ketilsstöðum Sviss og Teresa Schmelter eiganda Sprengju frá Ketilsstöðum, Þýskalandi.

{gallery}Juliana and Sprengja{/gallery}

 

Védís frá Hellubæ og folald 2017

Details
Created: 07 June 2017

Þetta folald fæddist fyrir nokkrum dögum, myndarlegur hestur undan Védísi frá Hellubæ og Konsert frá Hofi. Védís er fjórgangshryssa og var sýnd fjögurra vetra í aðaleinkunn 8,06, þar af 9,0 fyrir tölt, hægt tölt, stökk, vilja, fegurð í reið og 9,5 fyrir hægt stökk.

{gallery}Vedis foal 2017{/gallery}

Heilladís og sonur

Details
Created: 30 May 2017

Þessi mynd var tekin á fallegu kvöldi í síðustu viku. Merin á myndinni er Heilladís frá Syðri-Gegnihólum undan Álfadís frá Selfossi og Suðra frá Holtsmúla. Hún er með fyrstu verðlaun aðaleinkunn 8,32. Hún er fimmgangs og hlaut 8,46 fyrir hæfileika, þar af 9,0 fyrir hægt tölt og fegurð í reið. Með henni á myndinnii er yngsta afkvæmið, hestur fæddur í ár undan Krák frá Blesastöðum.

{gallery}Heilladis foal 2017{/gallery}

Tíbrá og folald 2017

Details
Created: 28 May 2017

Loksins kom skjótt folald, fætt í dag, Móðir er Tíbrá frá Ketilsstöðum og faðir er Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum. Tíbrá var í flokki 5 vetra hryssna á Landsmótínu 2014, hún er klárhryssa og hennar aðaleinkunn var 8, 25

{gallery}Tibra folald 2017{/gallery}

 

Mylla með rauðskjótt merfolald

Details
Created: 28 May 2017

Mylla átti sitt folald 25 maí, fallegt litið merfolald. Það er undan Ljósálfi frá Syðri Gegnishólum. Mylla hlaut 8,15 í kýnbótadóm 5 vetra gömul og var sjötta hryssan í fimm vetra flokki á Landsmótínu það árið, hún er undan Musku frá Stangarholti og Kolfinni frá Kjarnholtum.
{gallery}Millu folald 2017{/gallery}

Of þreytt fyrir myndatöku

Details
Created: 27 May 2017

Þetta folald fæddist 22. maí en þegar ég reyndi að mynda það var það þreytt og syfjað svo ég frestaði frekarri myndatöku þar til í dag. Í dag var hann hins vegar mjög hress. Móðir folaldsins er Ör frá Ketilsstöðum og faðir er Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum (Álfadís/Lord).

{gallery}Tired foal{/gallery}

Sonur Aðaldísar og Sveins-Hervars

Details
Created: 21 May 2017

Þetta fallega hestfolald fæddist 19 maí. Móðir er Aðaldís frá Syðri-Gegnishólum og faðir er Sveinn-Hervar frá Þúfu. Aðaldís og Álfadís eru náskyldar þar sem þær eru sammæðra og svo eru þeir Aðall frá Nýjabæ og Aðam frá Meðalfelli, feður þeirra, feðgar.
Aðaldís hlaut hæsta kynbótadóminn 6 vetra gömul, 8,32.

{gallery}AdaldisSon2017{/gallery}

WR móti Sleipnis lokið

Details
Created: 21 May 2017

Frábæru Word Ranking móti Sleipnis er lokið, það voru margir frábærir hestar og knapar að keppa á þessu sterka móti. Okkar teymi gekk bæði upp og niður en þó að mestu leiti gekk vel. Elin og Frami gerðu það gott með þrjú gull, í V1, T2 og samanlögðu. Bergur og Katla voru ekki upp á sitt besta svo þau enduðu í þriðja sæti í T1 og því fimmta í fjórgangi.
Freyja og Álfastjarna eru á uppleið að því er sýnist og lentu í áttunda sæti í fjórgangi með 7,23 / 7,43 og í fjórða sæti í T1 með 7,50/7,50.

{gallery}WR Sleipnir 2017 final{/gallery}

WR íþróttamót Sleipnis Laugardagur

Details
Created: 20 May 2017

Góður dagur í dag á IÞróttamótinu. Elin leiðir T2 slaktaumatöltinu og Bergur leiðir og Freyja í þriðja sæti í T1 tölt meistaraflokks.
Spennandi dagur á morgun.

{gallery}WRIthrottamotSleipnis2017Laugardagur{/gallery}

World ranking íþróttamót á Selfossi

Details
Created: 20 May 2017

World Ranking íþróttamót á Selfossi, 4 gangur Meistaraflokkur, Bergur og Katla 7,77 Elin og Frami 7,70, Freyja og Álfastjarna 7,23 og Brynja og Goði 6,40. Tvö A úrslit og ein B úrslít í kvöld.

{gallery}WRIthrottamotSleipnis2017{/gallery}

Tíminn flýgur

Details
Created: 18 May 2017

Timinn flýgur, nú þegar hafa liðið tvö ár siðan þessi mynd var tekin á kynbótasýningu í Hafnarfirði.

{gallery}BergurAtli{/gallery} 

Folald undan Silfurtá og Ljósálfi

Details
Created: 16 May 2017

Þetta litla fallega folald fæddist í fyrradag 14. maí 2017. Móðir þess er Silfurtá frá Syðri Gegnishólum (Suðri frá Holtsmúla and Mylla frá Selfossi) og faðir er Ljósálfur frá Syðri Gegnishólum (Álfadís frá Selfossi og Lord frá Vatnsleysu).
Silfurtá var litilega tamin en aldrei sýnd í kynbótadómi sökum þess að hún slasaði sig alvarlega veturgömul.

{gallery}SilfurtaFoal2017{/gallery}

Heilladísar og Krákssonur

Details
Created: 15 May 2017

Þetta fallega hestfolald fæddist 13. maí, móðir er Heilladís frá Selfossi og faðir er Krákur frá Blesastöðum. Heilladís er elsta dóttir Álfadísar frá Selfossi og faðir hennar er Suðri frá Holtsmúla.

 {gallery}HeilladisarSonur2017{/gallery}

Rauðskjótt dóttir Álfadísar og Sveins-Hervars

Details
Created: 14 May 2017

Þessi yndislega hryssa fæddist í fyrradag, 12 maí, námkvæmlega eins og ég vonaðist eftir. Þetta er sextánda folald Álfadísar og fyrsta rauðskjótta hryssan. Faðir hennar er Sveinn-Hervar frá Þúfu, hestur sem ég hef haldið uppá alla tíð enda hélt ég í fyrsta sinn undir hann þegar hann var fimm vetra gamall og ekki enn kominn með 1. verðlaun. Þarna sá ég mikið keppnishests efni og reyndíst það rétt því ég hygg að fáir hestar hafi gefið eins marga afkasta keppnishesta og einmitt Sveinn Hervar.

{gallery}AlfadisFilly2017{/gallery}

Stúdent frá Ketilsstöðum

Details
Created: 14 May 2017

Hér eru nokrar myndir af Stúdent 7 vetra, aðaleinkunn 8,47. Hann kom fram á stóðhestadegi Eiðfaxa fyrir rúmri viku. Móðir er Orka frá Gautavík og faðir er Álffinnur frá Syðri Gegnishólum. Stúdent er myndarlegur og jafnvígur alhliða hestur og sýndi sig vel.

{gallery}SEStudent2017{/gallery}

Veturgömul í Ketilsstaði

Details
Created: 13 May 2017

Fórum austur að Ketilsstöðum með tryppin í vikunni, þetta skemmtilega myndbrot var tekið þá, en eldri hrossin voru svo spennt að fá til sín veturgömlu tryppin að þau fóru mörgum sinnum uppá vagninn til að reyna að sækja þau.

Veturgömul í Ketilsstaði

Fyrsta folald ársins

Details
Created: 09 May 2017

Loksins er það komið í heiminn, fyrsta folald ársins. Móðir er Vænting frá Ketilsstöðum(Móðir m.a Natans) og faðir er Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum (Álfadís og Lord frá Vatnsleysu).

 {gallery}FyrstaFolald2017{/gallery}

Stóðhestadagur Eiðfaxa 2017

Details
Created: 07 May 2017

Stóðhestadagur Eiðfaxa var í gær og sýndum við fjóra hesta. Birti hér nokkar myndir af Álfgrími þar sem hann er sá eini þeirra sem hvergi hefur komið fram á þessu ári. Álfgrímur var með brotinn jaxl sem var tekinn í byrjun janúar og fór drjúgur tími í að jafna sig því þetta reyndist töluvert meira inngrip en okkur grunaði. Hesturinn stóð sig vel þó það muni þó nokkru að hann sé kominn með fullan styrk.

Brynja og Goði voru á sýningunni og áttu flotta sýningu, sjá myndir af þeim í albúminu.
Elin og Frami sýndu sig vel á stóðhestadeginum og nokkrar myndir af þeim eru í albúminu líka.

{gallery}StodhestadagurEidfaxa2017{/gallery}

 

Loksins komið sumar

Details
Created: 06 May 2017

Engin folöld komin enn en okkur finnst Vænting frá Ketilsstöðum ansi efnileg. Veðrið er sumarlegt og við bíðum spennt eftir folöldunum.

{gallery}2mai2017{/gallery}

  1. Venjulegur vinnudagur hjá Gangmyllunni
  2. Gæðingafimi Hrímnis og Hólaskóla
  3. Brynja keppir í gæðingafimi
  4. Alsystkin undan Álfadís og Orra
  5. Gleðilegt sumar!

Page 15 of 32

  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19