- Details
Karlakrunk, hvað skyldu þeir vera að ræða um Bergur og Gunnar þegar hann kom um daginn til að sækja hesta til útflutnings? Líklega stóðhesta og ræktun.
{gallery}Karlakrunk{/gallery}
- Details
Svona líða dagarnir, ein búin og næsta tilbúin, Framsýn og Rauðka frá Ketilsstöðum.
{gallery}HversdagsJanuar2019{/gallery}
- Details
Þeim fannst gaman að komast út í góða veðrið í dag, hér sést myndskeið af Ljósálfi frá Syðri-Gegnishólum að monta sig.
- Details
Álfadís frá Selfossi og Álfaborg frá Syðri-Gegnishólum undan Stála frá Kjarri.
{gallery}Alfaborg fra Selfossi 2019{/gallery}
- Details
Veðrið var frábært í gær og við hæfi að fara í fyrsta reiðtúrinn á stóðhestunum á 4ða vetur. Hér eru nokkrar myndir af Svartálfi frá Syðri-Gegnishólum en hann er undan Álfadísi frá Selfossi og Arion frá Eystra-Fróðholti. Honum fannst ansi spennandi og notaði hvert tækifæri til að skoða.
{gallery}SvartalfurIReidturUti2019{/gallery}
- Details
Pínu erfitt að halda jafnvægi í fyrstu járningu, 3 vetra dóttir Álfastjörnu frá Syðri- Gegnishólum og Konserts frá Hofi.
{gallery}AlfastjarnaKonsertDaughter first shoeing{/gallery}
- Details
Vorum að nota góða veðrið til að hugsa um ræktunar hryssurnar. Vænting frá Ketilsstöðum er 26 vetra í vor og er nú fylfull að sínu 19 afkvæmi. Hún er í finu standi en eitthvað farin að éta hægt þannig að röspun var við hæfi.
Til gamans má geta að Vænting er með 113 stig í kynbótaspá, hún á sjö dæmd afkvæmi þar af eru 6 þeirra með 1. verðlaun. Frægastur þeirra er liklega Natan sem féll frá svo snemma en skilaði frábærum afkvæmum. Flest öll afkvæmin undan henni sem eru ósýnd, eru skemmtileg reiðhross.
{gallery}Hugad ad raektunarhryssum{/gallery}
- Details
Þegar maður er gráskjóttur verður maður að venjast því að vera þveginn. Hér er Spurning frá Syðri-Gegnishólum í sturtu, móðir er Mylla frá Selfossi og faðir Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum..
{gallery}Spurning i sturtu 2019{/gallery}
- Details
Ljósálfur frá Syðri-Gegnishólum 4 vetra í sinn fyrsta byggingadóm, á vor syningu á Gaddstaðaflötum 2018.
{gallery}Ljosalfur 2019{/gallery}
- Details
Eftir helgi verða hryssurnar á fjórða vetur járnaðar í fyrsta sinn. alltaf spennandi. Hryssan á myndinni er undan Gráhildi frá Selfossi og Álffinni frá Syðri-Gegnishólum.
{gallery}4v hryssur a jarn 2019{/gallery}
- Details
Reiðhöllin orðin eins og ný, þjáfun heldur áfram.
{gallery}Training starting 2019{/gallery}
- Details
Þessi mynd var tekin í sumar, hryssan sem Bergur heldur í heitir Ör og var aldrei tamin vegna meiðsla sem hún hlaut sem tryppi. Ör er undan Heiðursverðlauna hrossunum Framkvæmd frá Ketilsstöðum og Kjarval frá Sauðárkróki. Ör er að koma sterk inn sem ræktunnarhryssa hjá okkur og eru öll afkvæmin góð reiðhross og nokkur þeirra farin að standa sig vel í keppni. Hestfolaldið sem er með henni á myndinni er undan Álfgrími frá Syðri- Gegnishólum eigandi Esther Kapinga. Í sumar kom fram afar athyglisverður hestur undan henni og Sveini-Hervari frá Þúfu í Landeyjum, Gígur frá Ketilsstöðum. Hann er með 8,18 í aðaleinkunn í kynbótadómi, 4 vetra klárhestur, sem nú hefur verið seldur Ástu og Will Covert í USA.
{gallery}Or fra Ketilsstodum 2019{/gallery}
- Details
Þessi mynd er tekin 2001 af Álfadís frá Selfossi, þá 5 vetra gamalli með sitt fyrsta folald, Álfastein frá Selfossi. Timinn flýgur.
{gallery}Alfadis 2001{/gallery}
- Details
22 Desember 2018, fallegur dagur.
{gallery}December 22nd 2018{/gallery}
- Details
Þegar við seldum Álfastein frá Selfossi fjárfestum við í tveimur tollum undir Orra frá Þúfu því það var nauðsynlegt ef þú vildir rækta undan honum. Ég get mér þess til að hann sé dýrasti stóðhestur hingað til á íslandi og sá besti.
Útkoman varð Strokkur frá Syðri-Gegnishólum undan Grýlu frá Stangarholti og Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum undan Álfadísi frá Selfossi.
Hér eru nokkrar myndir af Strokki.
{gallery}strokkur i kaliforniu{/gallery}